|
02.07.2009 14:55:42 / suunto
Vá lífið er yndislegt þegar maður lærir á það og sjálfan sig. Margt er að breytast hjá mér, er að læra á tilfinningar mínar og að treysta fólki og mínum æðrimætti. Allt er að gerast í kringum mig núna því ég er búin að opna fyrir því, hætt að vera neikvæð og horfa á jákvæðu hliðarnar í lífinu. Ef mér líður illa og veit ekki hvað ég á að gera þá bið ég um hjálp, sem ég gerði ekki áður heldur reyndi að treysta á sjálfa mig sem gekk ekki vel.En allt er að breytast til batnaðar og er að fá hluti upp í hendurnar sem ég hef ekki beðið um heldur og nú hef ég verkfærin í höndunum til að vinna úr því líka 
Nú er ég að fara að gifta mig, fara til Prag, byrja í viðskiptum og verða betri manneskja. En nú ætla ég að fara að eyða hamingjunni minni við að gera eitthvað skemmtilegt .
Bless og takk ..... Ekkert snakk
»
09.04.2009 12:18:55 / suunto
Jæja þá er komin skýrdagur ....! 2 fermingar framundan í dag og svo keyrum við Gulla á Höfn í Hornafyrði og svo á Fáskrúðsfjörð í fermingu, nóg að gera já.
Það er mest gott að frétta svo sem, ég er hætt að reykja ( var nú ekki erfitt ! ), mér gengur svona ágætlega í þessari sporavinnu minni en mætti ganga betur af minni hálfu, það er erfiðara en að segja það að átta sig á þessu öllu saman skal ég segja. Gulla er svo líka lítill pestagrís og er mestann hlutan þessa dagana bara veik svo þegar dagurinn er búinn er maður orðinn svo þreyttur og þráir smá tíma fyrir sjálfan sig að þá er bara horft á sjónvarpið.
Gunnþór er að keyra leigubíl allar helgar núna og er aldrei heima en við mæðgurnar fáum góðann tíma saman á meðan svo þetta er ekkert svo hræðilegt enþá, en samt leiðinlegt að hann getur ekki gert mikið með okkur. Við Gulla erum líka farnar að fara út að labba mikið og ég er farin að reyna að synda eitthvað smá þegar tími gefst líka, kannski að maður nái að grennast smá fyrir sumarið.
En nóg röfl í bili
Bless.... kex
»
21.02.2009 16:14:51 / suunto
Að læra á tilfinningar sínar er frekar flókið ferli get ég sagt með sönnu. Ætli að það sé ekki líka erfitt að segja frá þeim .
Ég er að taka til í sálarlífinu hjá mér, ég vissi að það væri erfitt en ekkert getur undirbúið mann undir það sem mun koma. Strax er ég ringluð, hrædd, gröm, berskjölduð og uppgefin á líkama og sál. Ég er í sporavinnu og er að gera gremjulistann minn, ég er að átti mig á því sem hefur verið undirliggjandi í sálinni og skemmt út frá sér og eitrað hugann. Ég er að átta mig á því hvað er að mér, afhverju ég hata mig svona og hverja ég er gröm útí sem er ótrúlega erfitt.
Ég er þreytt á því að fela mig á bak við brosandi grímu þegar ég öskra af vanlíðan á bakvið hana. Ég er að leggja niður trúðslætin og er að sýna hvernig ég er í raun og veru og ég er spurð hvort ég sé í fílu eða pirruð því ég er ekki eins og var. Í alvöru er ég mjög róleg manneskja sem elska að vera heima og glápa á sjónvarpið, lesa bók og vera með fjölskyldunni minni í rólegheitum en verð að sletta úr klaufunum inná milli líka,
Ég er að rifja upp hluti úr fortíðinni sem eru sárir og erfiðir, ég finn ekkert nema skömm og fyrirlitningu á sjálfri mér og er að læra að fyrirgefa sjálfri mér og taka mig í sátt. Sem er frekar erfitt eftir 17 ár af engu sjálfsáliti og hatri. Reiðin er líka til staðar og ég kann ekkert á sjálfan mig, ég hef of miklar tilfinningar og ég kann ekki að greiða úr þeim og skilja þær, heldur gleypa þær mig og éta að innan þar til ekkert er eftir nema vanlíðan. Ég hef aldrei á ævinni verið svona hreinskilin með tilfinningar mína eða neitt um sjálfan mig. Kannski því ég er hrædd við að treysta fólki . Ég kann ekki að hrósa því ég er hrædd við viðbrögðin hjá fólki og ekki get ég tekið hrósi heldur.
Ég er að læra að tjá mig meira og segja frá því hvernig mér líður. Ég hef ekki getað tekið þeirri hjálp sem ég hef fengið eða beðið um þá hjálp sem ég hef þurft því ég þori ekki að segja hvernig mér líður. Og ég þarf að læra að treysta öðrum. Ég er að læra að treysta á æðrimátt, það er allavega byrjunin á trausti.
Ég er það sem ég er, meira get ég ekki orðið.
»
14.12.2008 20:59:59 / suunto
Eigum við að ræða það eitthvað ...! Þetta er alltof fljótt að líða, ég á eftir að baka smákökurnar og á eftir að þrífa allt . En er búin að kaupa og pakka inn öllum jólagjöfunum en á bara eftir að kaupa gjöfina hennar Gullu og þá er það búið. En hlakka ekkert smá tli að borða jólamatin, opna pakkana með fjölskyldunni og hitta ættingjana í jólaboðunum og öll litlu frændsistkynin. Já ég játa það að það er komið smá kítl í annað kríli en er að reyna að hlda aftur af mér í svona ár í viðbót.
Ég er farin að vinna á Snæland video og er að vinna eins og vitleysingur, og það er verið að breyta búðinni til hins betra svo það er allt að gerast þar.
Gulla er bara hress og frekjan er farin að segja til sín núna og gera hlutina sjálf svo það eru stöðug stríð á þessu heimili, en ég leyfi henni að reyna sjálf og bíð eftir að hún vilji að ég hjálpi sér en ég verð líka að finna milliveginn í frekju og sjálfstæði. En hún er rosalega dugleg lítil stelpa og algjört yndi.
En ég reyna að fara að blogga meira.
Takk og bless ..... ekkert kex
»
18.07.2008 18:59:53 / suunto
Hver hefði haldið að ég mundi festast yfir Racheal Ray og dr.Phil ....! Gaman að sjá hvað bandaríkjamenn eru vitlausir. Við segjum bara allt gott, við vorum á ættarmóti um helgina á Blönduósi og það var rosa stuð. Við Steinþór bróðir fórum og renndum okkur niður Skúlahorn og það var svaka stuð en mér var pínu illt í rassinum eftir það en mér var alveg sama því þetta var svo gaman.En verð að fá mér shake svo
Takk og bless ... ekkert kex 
»
20.06.2008 11:24:30 / suunto
Gulla er búin að vera með eyrnabólgu og kvef vesen að mamma tók ekki eftir því að dúllan tók bara 2 tennur á meðan þessu stóð. Svo mín er komin með 6 tennur núna, og þegar ég var að athuga og skoða tennurnar að þá beit dúllan mömmu sína þéttings fast í puttann og var ekki paránægð að ég væri að pirra hana. En þessi eyrnabólga er að ganga úr henni svo ég bíð bara eftir því að geta farið með hana í sund því henni finnst svo gaman í sundi að busla eins og vitleysingur. Svo er ég farin að elda bara hádegismat í staðin fyrir kvöldmat til að ég kannski grennist eitthvað ( ég er að verða pínu þreytt á fellingunum). Svo er maður bara að taka inn Herbalife, Gunnþór er búinn að grennast helling en ég er aðeins hægari í þessu en er að mjakast. En ég er miklu hressari eftir að ég fór að taka þetta inn svo það er aðal plúsinn því orkan mín var lítil sem engin. En verð að fara að elda þennan hádegismat fyrir pakkið
Svo takk og bless ..... ekkert kex
»
04.06.2008 20:12:28 / suunto
Hæ hæ !
Það er svolítið langt síðan að ég bloggaði síðast því það var breytt slóðinni á bloggið og ég fann ekki síðuna mína í smá tíma. En já það var jarðskjálfti á fimmtudaginn frekar stór, en það sluppu allir ómeiddir og það voru mjög litlar skemmdir, það brotnuðu 3 glös, krukkan utan um spaghettíið mitt og ofninn inn í stofu datt af festingunum en skemmdist ekkert svo honum var bara smellt aftur á og það voru örlitlar skemmdir í parketinu en ekkert til að væla yfir. Gulla var ekkert hrædd og mamma fór bara með hana með sér upp í sveit svo ég gæti farið í útkall á Eyrarbakka.
En takk í bili.
»
25.01.2008 18:52:26 / suunto
Fyrir tilviljun horfði ég á fréttirnar og sá að það var verið að dæma í nauðgunarmáli sem menn frá Litháven gerðu. Ekki nóg með það að þetta þá voru þeir báðir með sakaskrá í heimalandi sínu sem þýðir að við erum að flytja inn afbrotamenn þegar við eigum nóg af því fyrir. Ég mundi leggja til að þegar innflytjendur eru að koma til landsins hvaðan sem þeir eru að það eigi að kanna sakaskránna, í þessu tilfelli ef það gefði verið gert hefðum við komið í veg fyrir þessa nauðgun. Það getur ekki verið svona rosalegt mál að kanna sakaskrá þeirra sem koma hingað því það væri kannski hægt að koma í veg fyrir svona afbrot. Ég þori ekki lengur að ganga ein heim eftir að það er komið myrkur því maður er bara drulluhræddur við árás svo ég geng með vasahníf á mér og ef einhver gerir sig líklegann til að gera mér eitthvað þá hika ég ekki við að nota hann ...! Hversu leiður er maður að verða á nauðgunar, slagsmála og ofbeldisfréttum og ekki eru íslendingarnir að skána heldur maður er nú næstum jafn hræddur við þá. En náttúrulega er líka um það að einhverjar konur fara heim með innflytjendum og fá sér gott í kroppinn og sjá svo eftir því og kæra svo, sem setur þá ennþá verra orð á innflytjendur. Og ég er ekki að segja að þeir séu allir slæmir en það eru rotin epli allstaðar sem skema fyrir hinum. Og ekki eru þær konur sem ljúga heldur að hjálpa til og hef heyrt um meira en eitt tilfelli um svona lygar og um sannar árásir takk fyrir. En það má nú taka til umhugsunar þetta með sákaskránna ..... E n hef ekki meira að segja um þetta mál svo takk og bless ... ekkert kex !
»
31.12.2007 14:54:30 / suunto
Jæja þá er árið á enda. Við Stebba vinkona vorum að rifja upp að fyrir akkurat ári síðan þá vorum við ný orðnar óléttar og núna eigum við 5 og 6 mánaða gömul börn, soldið fljótt að líða. Gulla er bara eitur hress en það er náttúrulega búið að vera rugl á venjum hennar svo hún varð eitthvað pirruð á því en það er allt að lagast núna. Svo fer hún í skoðun 4 janúar, þá fær maður að vita hvað hún er búin að vera dugleg að stækka, en miðað við hvað barnið borðar mikið þá ætti hún að vera búin að stækka alveg slatta. En ég verð að fara að baða barnið og svona svo blogga hress á nýju ári. 
»
10.12.2007 17:36:01 / suunto
Jæja kannski kom inn tími á smá bloggfærslu. Ég fékk e-mail sem vakti mig aðeins sem er um sóun á mat og hvernig börnin í 3 heiminum hafa það og ég ætla að passa mig núna hvernig ég hef matinn og hvernig ég kaupi inn. Þetta eru svo hræðinlegar myndir af sveltandi börnum að ég er svo glöð að ég þarf ekki að upplifa þessa sjón á mínu barni og get gefið okkur öllum nóg að borða. Ég ætla líka að íhuga þessa veraldlegu hluti sem ég þarf ekki á að halda og er hætt að væla um þessa litlu vandamál sem skipta litlu máli. Ég þarf ekki að eiga allt nýtt og betra en aðrir bara að það gangi og ég sé ánægð og eigi nóg fyrir mig og mína. Ég ætla mér að verða duglegri við að gefa til hjálparstarfa og ég er líka að styrkja barn í gegnum ABC hjálparstarfið. Kannski að einn daginn get ég gefið meira af mér til þessara barna og fólks til að auðvelda þeim lífið því ég veit núna hvað við höfum það mjög gott þó að við séum ekki launahá og að ég geti líka keypt mér hluti sem við þörfnumst og viljum eiga. Takið til íhugunar að það er fólk þarna úti sem deyja daglega af matar og vatnsskorti og lítl börn fara oft verst út úr þessum aðstæðum vegna þess að þau geta ekki séð um sig sjálf eða geta ekki labbað svona langt í matarbúðirnar eða deyja á leiðinni úr sulti. Svo vertu ánægð/ur með það sem þú hefur þó að það sé ekki endilega það margt en þú ert ekki að svelta. Eftir þetta e-mail og ein myndin situr fats í huga mér að ég vil gera meira og gefa meira af mér og ég hef núna hugmyndir hvað ég vilji gera að ævistarfi mínu. Takk fyrir mig
»
27.11.2007 22:49:08 / suunto
Jæja þá flytjum við á föstudaginn 30. nóvember ...! Ég get ekki beðið, ég er búin að setja föt sem við notum ekki mikið í fataskápana og útifötin og alla skó nema strigaskóna okkar og búin að fara með sængurfötin svo það er eitthvað komið af stað í þessu. Svo er maður bara að þvo þvott og pakka niður hérna í Keflavík. Það er svo stutt eftir. Svo er Gulla bara í góðu stuði hérna, hún er farin að borða 3x á dag svo hún er farin að sofa betur og þetta magavesen er alveg búið. Svo erum við að venja hana að sofna bara sjálf í sínu rúmi án þess að labba með hana eða rugga henni í svefn, það er soldill grátur en við förum inn á 5 mínútna fresti og stingum snuðinu upp í hana svo sofnar hún eftir svona hálftíma það þarf bara svolitla þolinmæði í þetta en þetta er allt að koma hjá henni. Hún er farin að halda á dóti og leika sér aðeins líka alveg rosalega dugleg, svo er hún farin að spjalla rosa mikið og nagar allt sem kemur nálægt henni og þar á meðal köttinn. En ég blogga meira þegar að ég búin að flytja  Takk og bless .... ekkert kex
»
01.11.2007 22:34:10 / suunto
Jæja þá er búið að kaupa og við flytjum vonandi í byrjun des. Ég er nánast farin að telja niður dagana þar til að við flytjum því ég get ekki beðið, en þarf samt að vera soldið ein heima með stelpuna því Gunnþór þarf að klára samninginn áður en hann getur klárað skólann svo ég þarf að vera hálfpartinn einstæð móðir í 2 mánuði. Mjási er ennþá jafn ofvirkur og drekkur bara úr baðinu svo þar er alltaf rennandi vatn. Og nýji uppáhaldsstaðurinn hans er baðvaskurinn eða uppá baðinnréttingunni. Gulla er enþá með magakveisu en þetta tímabil á að fara að enda fljótlega því hún er orðin 12 vikna svo maður bíður bara og vonar, ég er reyndar farin að gefa henni graut 2 á dag og hún lagaðist soldið við það en hún fer reyndar ekki að sofa fyrr en um hálf eitt á næturnar en ég bíð eftir næsta vaxtakasti og vona að þá breyti hún tímanum aftur. En annars er allt gott að frétta af henni, hún er farin að halda alveg haus, vill bara sitja upprétt og finnst rosagaman að standa í lappirnar og er rosalega sterk og dugleg. En verð að fara að reyna að koma krakkanum í rúmið svo takk og bless ..... ekkert kex
»
10.10.2007 10:33:18 / suunto
Jæja þá á bara eftir að skrifa undir kaupsamning á Birkivölum 2 og fá svar frá íbúðalánasjóð og þá gerum við flutt á Selfoss fyrir jól og ég get ekki beðið eftir að komast héðan. Og fer bráðum að fá ógeð á E! stöðinni því það er alltaf það sama á henni og eina stöðin sem er eitthvað hægt að horfa á fyrir klukkan 10 á morgnana En er svona að fara að byrja að setja niður í kassa og svona í rólegheitunum svo maður verði ekki alveg á fullu þegar líður að desember. Og okur mæðgunum gengur ágætlega svona, Gulla er enþá með magakveisu sem fer vonandi að fara að lagast og við erum búnar að vera rosa duglegar að fara út að labba í vagninum og litlu finnst voða gott að vera í honum þegar hann hreyfist en þegar hann stoppar þá vaknar hún. Og hún er farin að hafa gaman af baby tv stöðinni í smá tíma í einu svo ef ég er svöng þá set ég á þá stöð og stekk og fæ mér í gogginn. En hún vill athygli núna svo verð að hætta . Bless og takk ... ekkert snakk
»
25.09.2007 16:43:27 / suunto
Nú er Gulla litla orðin 7 vikna og stækkar rosa vel. Ég man þegar ég sagði við mömmu að ef ég eignaðist magabarn mundi ég láta hana ætleiða það en ég skal éta það ofan í mig núna, ég á lítið magabarn sem fer sko hvergi því hún er svo sæt og mikið krútt. Ég er orðin forfallinn sjónvarps fíkill því það er það eina sem ég hef að gera á daginn og bíð alltaf spennt eftir Whose line is it anyway sem eru 2 á dag Sorglegt ég veit. En við verðum á Selfossi næstu helgar því Gunnþór er smíða herbergi fyrir Elsie hjá pabba sínum svo ég hef eitthvað annað að gera og fólk til að spjalla við, ég er að verða frekar góð í barnamáli. Svo er ég alveg að verða fín og " flott " aftur því bumban er alveg að verða horfin en er samt enþá með slappa húð sem vonandi fer þegar ég fer að æfa eitthvað ( þegar ég nenni að byrja) en ég komst í fyrsta skipti í mínar gallabuxur í gær og ég var svo stolt ( það þarf ekki mikið til að kæta mann þessa dagana). En verð að fara undirbúa matinn því það tekur 90 mín að elda hann svo takk og bless ... ekkert kex
»
12.09.2007 14:35:20 / suunto
Jæja þá er litla snúllan sofandi og ég hef tíma til að dunda mér eitthvað. Ég er búin að vera að flakka á bloggsíðum og fólk er ekki nógu duglegt að blogga sé ég. Ég hef líka tekið eftir því að allir eru að læsa barna síðunum sínum sem maður skilur svo sem eftir þessa barnaperragrein, en svo er fólk líka að læsa bloggsíðunum sínum sem mér finnst pínu skrítið því er ekki ástæða bloggsíðna að miðla skoðunum og fleiru til fólks sem vill lesa það ? Eða er annað fólk að koma inn á síðurnar til að vera með einhver leiðindi og bögg og fólk neyðist til að læsa þeim ? Ég man eftir að Magga mágkona þurfti að skipta um blogg síðu því einhverjar gelgjur voru með meinyrði í gestabókinni hennar og ekki voru þau falleg orðin sem voru skrifuð. Kannski er fólk ekki þroskaðara en þetta, ég hef vafrað inná síður hjá fólki sem mér er ekki mjög vel við en ég kommenta ekkert eða skrifa neitt illt á síðuna hjá þeim en mér finnst gaman að sjá hvað hefur drifið á daga þeirra eins og þau eflaust gera á minni síðu líka. En það er nóg að gera í þessu mömmuhlutverki og snúllan er loksins að snúa sólarhringnum við okkur til mikilar ánægju skal ég segja ykkur og hún svaf í nótt og vaknaði einu sinni til að drekka og ég vona að hún haldi því áfram. Þessi vaxtakippur er að líða yfir svo að hún sefur meira núna oger værari. Ég hætti líka að gefa henni AD vítamín dropana og þá hefur hún verið miklu betri í maganum svo ég ætla bara að bíða með svoleiðislagað þar til ég má gefa henni lýsi. En kannski að maður ætti að reyna að þvo þvott eða eitthvað álíka leiðinlegt svo takk og bless ... ekkert kex.
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|